Ég skellti í alveg hreint hrikalega gott kjúklingasalat um daginn. Kristrún Helga vinkona var að koma í mat þannig að ég ákvað að ég yrði nú að elda eitthvað sérstaklega gott, enda kemur hún ekki svo oft í mat :-) Ég ákvað að skella í gott og girnilegt kjúklingasalat, sem raunar er örlítið öðruvísi: Kjúklingur, vínber, epli og kasjúhnetur!
Uppskriftin er eftirfarandi ... fyrir 3-4
2 kjúklingabringur
Ólífuolía
Kajúnkryddblanda
1 msk appelsínumarmelaði
1/2 blaðlaukur
1 grænt epli
2 dl rauð vínber
1/2 dl limesafi
2 dl grísk jógúrt
1 msk matarolía
1 tsk cumin fræ
1 hvítlauksgeiri
2 tsk karrý
2 msk kasjúhnetur
Þessi kom skemmtilega á óvart - hverjum dettur í hug að blanda saman kjúklingi, eplum og vínberjum?! En virkilega góð var blandan - mæli eindregið með þessu enda létt og skemmtilegt og jafnvel betra daginn eftir.
Meira síðar.
Uppskriftin er eftirfarandi ... fyrir 3-4
2 kjúklingabringur
Ólífuolía
Kajúnkryddblanda
1 msk appelsínumarmelaði
1/2 blaðlaukur
1 grænt epli
2 dl rauð vínber
1/2 dl limesafi
2 dl grísk jógúrt
1 msk matarolía
1 tsk cumin fræ
1 hvítlauksgeiri
2 tsk karrý
2 msk kasjúhnetur
Byrjaði á að skera kjúklinginn í bita og krydda
Snöggsteikti kjúklinginn svo upp úr ólífuolíu
Svo var bara að skera blaðlaukinn í sneiðar
og eplinn í bita
og svo vínberin í helminga.
Skellti þessu öllu í stóra skál ásamt grísku jógúrti
... limesafa ...
og appelsínumarmelaði.
Setti þetta svo til hliðar um stund.
Svo skellti ég smá matarolíu í pönnu og leyfði henin að hitna
áður en ég skellti cumin fræjunum út í ...
ásamt hvítlauknum ...
Þegar cumin fræin voru hætt að hoppa og skoppa
bætti ég karrýinu út í og blandaði ölluvel saman
Leit að lokum svona út.
Svo var bara að hella karrýblöndunni út í stóru skálina,
yfir epla/vínberja/jógúrtblönduna og blandaði öllu
vel og vandlega saman.
Þá var bara að hræra kjúklingnum út í
og að lokum dreifa kasjúhnetunum yfir :-)
Þessi kom skemmtilega á óvart - hverjum dettur í hug að blanda saman kjúklingi, eplum og vínberjum?! En virkilega góð var blandan - mæli eindregið með þessu enda létt og skemmtilegt og jafnvel betra daginn eftir.
Meira síðar.
Ummæli
Kveðja,
Kristrún Helga
Ég gerði kjúklingabaunakarrýið með smjörhnetunni um daginn, mikið svakalega var það gott, sérstaklega hnetan. Karlinn sagði reyndar að þetta hefði verið einhæft, samabragðið af öllu á diskinum, en hann er karlmaður með skrýtið bragskyn ;-)
En ég á sko eftir að reyna að fá verslunarstjórann til að panta svona hnetu hingað á Hólmavíkina fyrir mig :)
Takk fyrir mig Kv. Þuríður
og
http://vestfirdingurinn.blogspot.com/2011/01/gulrotarengifersupa-og-hvitt-snilldar.html