Sinnepssósa með grillmatnum

Það er fátt betra en góð sósa og það þarf í rauninni ekki að hafa neitt fleiri orð um það.

Enda var þessi sósa alveg hreint fáránlega einföld!

Uppskriftin endaði sirka svona ...
2 dl grísk jógúrt
1 dl púðursykur
1-2 msk dijon sinnep
1-2 msk tómatsósa
Salt og pipar, ef vill - 
Einnig getur verið ágætt að setja dass af viskí út í - bara svona til gamans fyrir bragðlaukana.

Setja saman í skál jógúrt og sykur...

sinnep og tómatsósu ...

Svo var bara að hræra saman með gaffli ...

þar til allt hafði blandast saman og ...

sykurinn var farinn að leysast upp

og tími var kominn til að bera hana fram!

Þetta reyndist hin ágætasta sósa - eiginlega bara mjög góð - og það var svo yndislega einfalt að gera hana. Bragðgott og fljótlegt = Hin ágætasta blanda!

Meira síðar.

Ummæli