Kjúklingasúpa með kókos, engifer og chillí

Það er fátt jafn skemmtilegt og gefandi og að elda mat, sérstaklega góðan mat, það eru fáar stundir sem ég kann að meta jafn rækilega og stundirnar þar sem ég stend við eldavélina, smakka til nýjar uppskriftir og prófa eitthvað spennandi sem ég hef ekki prófað áður.  

Ég hef verið að íhuga upp á síðkastið hvað væri gaman að prófa sem væri kannski svolítið vestfirskt og skella því í nýja rétti með alþjóðlegu ívafi - en hvað er vestfirskt í eldamennsku? Allar hugmyndir vel þegnar :)

En það er fullt af öðrum uppskriftum sem eru skemmtilegar - hér er ein undir tælenskum áhrifum sem ég eldaði fyrir góða vinkonu um daginn.

Uppskriftin endaði svona ... fyrir 2-3
2 kjúklingabringur
2 1/2 msk rautt karrýmauk
8 dl kjúklingasoð
1 dós kókosmjólk
1-2 þurrkuð chillí
4-5 cm fersk engiferrót
1 rauðlaukur
1/2 búnt ferskur kóriander
2 tsk limesafi
1 msk púðursykur
Salt og pipar
Matarolía
Byrjaði á að skera kjúklinginn í litla bita,
og steikti svo upp úr matarolíu.

Bætti svo rauðu karrý út á pönnuna

og reyndi að blanda vel saman við kjúklinginn.

Hellti svo kjúklingasoðinu út í

og kókosmjólkinni ... 

Tók svo þurrkað chillí og muldi niður út í súpuna,
 
skar rauðlaukinn í þunnar sneiðar ...

og setti út í sömuleiðis.

Skar svo engiferið smátt

og setti út í, ásamt smá salti og pipar.

Leyfði suðunni svo að koma upp og leyfði að malla
í um það bil korter.

Hér ruglast aðeins röðin á myndunum, en það skiptir
ekki öllu máli því þetta eru síðustu þrjú skrefin og 
röðin skiptir engu máli.  Skellti sem sagt limesafa út í.

Smá púðursykur ...

og saxaði svo kóriander 

og skellti út í sömuleiðis.
Leyfði þessu að malla aðeins lengur, sirka fimm mínútur
og hrærði reglulega í til að blanda öllu vel saman.
Úr varð þessi líka bragðgóða súpa!

Mæli óhikað með þessari, einföld og ótrúlega bragðgóð.  Það er líka hægt að hafa hana bragðsterka eða ekki bragðsterka, allt eftir smekk og bæta eða draga úr chillíinu, einnig er hægt að hafa minna soð og meiri kókos - allt eftir smekk!

Meira síðar.

Ummæli