Steiktir grænir tómatar

Það hefur lengi verið draumur minn að prófa að búa til steikta græna tómata - enda einlægur aðdáandi bókarinnar og myndarinnar.  Þegar ég komst svo yfir græna tómata í vikunni var ekkert annað að gera en að prófa ...

Uppskriftin var eftirfarandi ...
Grænir tómatar
1/2 dl matreiðslurjómi
1-2 msk hveiti
1/2 msk maizanamjöl eða maísmjöl (betra)
Salt
Pipar
Matarolía


Skar tómatana í þykkar sneiðar

Skellti rjómanum í skál og bætti hveitinu og mjölinu út í

Notaði svo gaffal til að hræra saman, 
á að vera sirka eins og pönnukökudeig

Tók svo fram pönnuna og steikti beikon

Velti tómötunum upp úr deiginu á meðan

og skellti þeim svo ásamt matarolíu á pönnuna

og leyfði að steikjast, sirka 3 mínútur á hvorri hlið

Mmm.... nýtt grænkál, steiktir grænir tómatar og beikon

Þetta var eiginlega hrikalega gott, kom mjög skemmtilega á óvart - passa að setja svolítið vel af salti og pipar í deigið og þá er þetta algert æði :-)  Kom sterkt inn sem léttur kvöldverður og örugglega alger snilld sem brunch eða hádegismatur!

Varð ekki fyrir vonbrigðum!

Meira síðar.

Ummæli