Stundum tekur maður misvitrar ákvarðanir í eldhúsinu. Ég tók eina slíka í gær ...
Ég ákvað að gera súpu í gær, og eftir nokkra leit og innlit í ískápinn ákvað ég að prófa haitíska uppskrift að súpu með smjörhnetu og fleira girnilegu.
Eitt af því sem í súpunni átti að vera voru negulnaglar.
Nákvæmlega þá áttu að vera 2 negulnaglar þar sem ég þurfti að meir en helminga uppskriftina ...
Þessa tvo negulnagla átti að setja í chillí pipar.
Gerið ykkur grein fyrir því að það er engin symmetría í að setja 2 negulnagla í stóran chillí pipar?
Það kom þess vegna ekki annað til greina en að setja aðeins fleiri en 2 negulnagla.
Aðeins eins og í 5 negulnagla.
1/4 dl steinselja

Fallegt ekki satt? :-)
Mér fannst þetta yndislegt!
Hafði sömuleiðis enga trú á að þetta myndi hafa nein teljandi áhrif á bragðið.
Ég hafði verulega rangt fyrir mér!
Ekki nota fleiri en í mesta lagi 2 negulnagla þegar þið prófið þessa uppskrift!
Uppskriftin er eftirfarandi ... fyrir 2-3
1 lítil smjörhneta (ca. 3 1/2 dl)
5 dl vatn
Salt og pipar
1 chilli pipar, rauður
2 negulnaglar
3 litlar gulrætur eða 1-2 stórar
1/2 gulrófa
1/2 hvítkálshaus
1/4 tsk múskat
1 msk sítrónusafi
Spagettí eða tagliatelle1/4 dl steinselja
Byrjaði á að skera smjörhnetuna í litla bita
og skellti svo í pott ásamt vatninu ...
tók svo til chillí piparinn og stakk í hann negulnöglunum
Athugið notið eingöngu tvo!!
Skellti svo chillí piparnum ásamt negulnöglunum
og smá salti og pipar í pottinn og leyfði suðunni
að koma upp - leyfði að sjóða í u.þ.b. 15 mínútur
Á meðan var tækifæri til að skera grænmetið ...
Byrjaði á að hreinsa gulræturnar
og skar þær svo í þunnar sneiðar
Þá var það rófan ...
sem ég skar eins og smjörhnetuna í litla bita
Að lokum var það svo grænkálið
sem ég svo skar sömuleiðis í litla bita!
Á meðan var smjörhnetan orðin mjúk og tími til að nota ...
töfrasprotann :-)
Byrjaði samt á að fiska chillí-ið upp úr pottinum.
Alger snillld!
En auðvitað er líka hægt að skella súpunni úr pottinum
og í matvinnsluvél eða blandara ...
ég bara elska töfrasprotann!
Þegar súpan var orðin slétt og fín var lítið annað eftir
en að skella grænmetinu út í pottinn
ásamt smá múskati
og sítrónusafa
og hræra öllu vel saman og leyfa að sjóða í sirka 10 mín
Á meðan nýtti ég tækifæri og saxaði steinseljuna
Skellti svo tagliatelli-inu út í,
ásamt steinseljunni
og leyfði að sjóða þangað til pastað var soðið
og voilá, þessi ágæta súpa tilbúin!
Sko! Ég verð að viðurkenna að negulnaglabragðið eyðilagði svolítið súpuna - en hún reyndist nú samt nokkuð skemmtilegt. Allt öðruvísi bragð en ég á að venjast og ég er eiginlega alveg sannfærð um að ef ég hefði ekki farið á þetta negulnaglafyllerí þá hefði hún verið frábær! Eeeeen ég verð eiginlega að prófa hana aftur áður en ég gef henni endanleg meðmæli - en skemmtileg súpa var þetta samt sem áður!
Meira síðar.
Ummæli
http://www.nature.is/frettir/1819/
En lítur annars vel út, gæti alveg hugsað mér að smakka!
Kveðja,
Hrefna